Landfyllingar
Hjá Faxaflóahöfnum er haldið utan um upplýsingar um landsvæði sem fer undir landfyllingar og tegundir og magn efna sem notað er til landfyllinga samanber töflu 16 og mynd 11.
Notkun efnis frá dýpkunarframkvæmdum auk fyllingarefnis og jarðvegs frá framkvæmdum er skilgreind sem endurvinnsla. Fyllingarefni frá útboðsverkum skilgreinast ýmist sem endurvinnsla eða efni úr námum. Sá verktaki sem vinnur að umræddri framkvæmd útvegar það efni sem þarf til framkvæmdarinnar. Allt fyllingarefni sem notað var til landfyllinga á árinu 2017 var jarðvegur frá framkvæmdum, fyllingarefni frá stóriðju og keypt fyllingarefni úr útboðsverkum.
Tafla 16. Landsvæði til landfyllinga og magn og tegundir efna sem notuð voru til landfyllingar árin 2016 og 2017
2016 | 2017 | ||
Magn | Magn | ||
Landsvæði til landfyllinga | ha | 1 | 1,9 |
Magn efna til landfyllinga, áætluð skipting | |||
Dýpkunarefni til landgerðar | m3 | 0 | 0 |
Endurvinnsla fyllingarefnis og jarðvegs frá framkvæmdum og rekstri | m3 | 16.200 | 60.000 |
Efni í flæðigryfju frá stóriðju | m3 | 19.500 | 17.500 |
Fyllingarefni í útboðsverkum | m3 | 4.800 | 78.000 |
Keypt fyllingarefni úr námum í sjó | m3 | 0 | 0 |
Heildarmagn efnis til landfyllinga | m3 | 40.500 | 155.500 |
Mynd 11. Magn efna til landfyllinga, áætluð skipting árin 2013 til 2017